Jóla-Gospel á Ránni

Jólatónleikar verða á veitingahúsinu Ráin við Hafnargötu í Reykjanesbæ kl 20 föstudaginn 11.des. Fram koma G.I.G. sem er frábær sönghópur og hljómsveit. Gestasöngvari er Regína Ósk. Aðgangur er ókeypis. Skrifað af Kristinn Ásgrímsson

Kynning á góðum vini.

Mig langar að kynna nýjan  tengil sem við höfum sett inn. Prasanna Kumar er indverskur og hefur þá hugsjón að fá kirkju Jesú Krist til að biðja fyrir heiminum.  Það gerir hann með því að reisa upp hópa sem biðja stöðgulega . Hann var hér á Íslandi árið 2005 . Hann hefur ferðast víða og prédikað orð Guðs, einkum varðandi …

Barnastarfið byrjað

Nú er dagskráin að breytast hjá okkur. Barnastarfið er nú komið í gang. Við erum búin að fá nýtt fólk til liðs við okkur þar. Síðan byrjar biblíuskólinn 1. október.  Við stefnum líka að því að byrja með samfélagshópa í október.

Nemið staðar og litist um..Jer.6.16.

September, mánuður til að leita Drottins. Allt í einu er komið haust, biblíuskóli framundan hefst fimmtudaginn 1. október. Kennt verður á fimmtudögum og einnig a.m.k. einn laugardag í hverjum mánuði. Það eru spennandi viðfangsefni sem verður tekist á við, efni sem við heyrum kannski ekki svo mikið kennt um. En frá því verður sagt nánar síðar. Aðalkennari skólans og umsjónarmaður …

Sumardagskrá

Nú er komið sumar og það verða smá breytingar á samkomudagskrá hjá okkur. Biblíuskólinn er búinn að sinni, byrjar sennilega aftur í október. Í sumar verða engar fimmtudagssamkomur, hins vegar ætlum við að hafa opið hús á föstudögum frá kl. 18.00 og gera út á kaffihúsastemmingu. Fara með borð og stóla út á gangstétt fyrir framan kirkjuna okkar. Nú bænastundir …

Aðalfundur

Við héldum aðalfund kirkjunnar okkar í kvöld. Byrjuðum með yndislegri bænastund. Fórum yfir atburði síðasta árs, ásamt ársreikningum okkar. Síðan báðum við fyrir 2 nýjum öldungum kirkjunnar. Þeir eru: Karl Stefán Samúelsson og Stefán Guðjónsson. Karl Stefán kemur frá Svíþjóð, en talar frábæra íslensku, hann er giftur Sólrúnu Hlöðversdóttir. Stefán Guðjónsson er mörgum kunnur af útvarpsstöðinni Lindinni. Hann er giftur …

Biblíuskóli Hvítasunnukirkjunnar í Keflavík

Sýn skólans er að þjálfa fólk til að:   „Að berjast trúarinnar góður baráttu.“ og höndla eilífa lífið.  Þriggja mánaða námskeið einu sinni í viku.   Hefst fimmtudaginn 2.apríl. kl.20.00.   Þú getur lesið nánar um skólan undir: Biblíuskóli Ekkert námsgjald Af hverju biblíuskóli ?   Jú, eins og segir í bréfi Páls til Tímóteusar: Legg kapp á að reynast hæfur fyrir …

Ef Guð er faðir

Mikil kennsla flæðir nú yfir kirkjuna um föðurhjarta Guðs og kærleika Hans til sinna barna. Og óhætt er að segja að sú fræðsla er vissulega tímabær og  hefur gefið nýja vakningu inn í kirkju Guðs. En það sem er mjög mikilvægt á vakningar tímum, er að halda því sem við höfum, þ.e. þeim grunni sem við byggjum á. Þegar Guð …

Sveigjanleiki

Var að glugga í gamlar glósur og fann þetta: “ Blessed are the flexible, they will bend and not brake“ Eða : “ Sælir eru hinir sveigjanlegu, þeir svigna en brotna ekki.“ Stundum getur verið gott að gefa aðeins eftir og halda sinni stöðu, í stað þess að vera stífur og missa sína stöðu. Kólossubréfið 4:6, Mál yðar sé ætið ljúflegt, en …