Aðalfundur

Við héldum aðalfund kirkjunnar okkar í kvöld. Byrjuðum með yndislegri bænastund. Fórum yfir atburði síðasta árs, ásamt ársreikningum okkar.

Síðan báðum við fyrir 2 nýjum öldungum kirkjunnar. Þeir eru: Karl Stefán Samúelsson og Stefán Guðjónsson.
Karl Stefán kemur frá Svíþjóð, en talar frábæra íslensku, hann er giftur Sólrúnu Hlöðversdóttir.
Stefán Guðjónsson er mörgum kunnur af útvarpsstöðinni Lindinni. Hann er giftur Deborah Guðjónsson.