Samkomur um páska

Við verðum með okkar árlegu páskatónleika  á skírdag. Þeir verða haldnir í Ytri-Njarðvíkurkirkju og hefjast kl. 20:30. Eins og oft áður þá fáum við hina frábæru Gospel Invasion Group frá Krossinum.

Síðan verður samkoma á páskadagskvöld kl. 20.00 í Hvítasunnukirkjunni. Þá verður gestur okkar Vörður Traustason prestur Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu í Reykjavík
Samkoman kl.11.00 fellur því niður á páskadag.