Á síðasta aðalfundi 10 apríl var settur inn nýr öldungur í kirkjuna. Hann heitir Björgvin Tryggvason og hefur tilheyrt kirkjunni undanfarin 10 ár. Hann er tveggja barna faðir og giftur Kristínu Jónsdóttur sem sér um barnastarfið í kirkjunni.
Björgvin stundaði nám á biblíuskóla Livets Ord í Uppsala Svíþjóð í 2 ár. Við bjóðum Björgvin velkominn til starfa og óskum honum og fjölskyldu hans blessunnar í þjónustunni.
Kristinn Ásgrímsson