Góðar páskasamkomur að baki

Það sem byrjar sem tilhlökkun og eftirvænting er nú góð minning og endurnæring.

Við vorum með frábæra gesti frá Færeyjum um páskana. Einn af þeim Nikulás Jóhannsson er reyndr hér enn. En hann tilheyrði söfnuðinum okkar hér um nokkurra ára skeið, áður en hann flutti til Færeyja.

Við vorum með góða söngsamkomu í Ytri-Njarðvíkurkirkju á föstudaginn langa, sem þú getur horft á hér.

Síðan vorum við á samkomu unga fólksins á laugardagskvöldi, troðfullt út úr dyrum. Þar fengum við að heyra frábært sambland af vitnisburði og prédikun ungrar konu.

Á páskadagskvöld var síðan hápunktur þessa páskamóts, en þá þjónuðu vinir okkar frá Færeyjum í söng og prédikun og með krafti heilags anda inn í líf okkar