Tryggan vin, hver finnur hann ?

Í orðskviðunum 20.6. segir : “ Margir menn eru kallaðir kærleiksríkir, en tryggan vin hver finnur hann.

Hvort viltu eiga tryggan vin eða frægan vin ?

Hollywood segir þér, að þú sért eitthvað, sem þú ert ekki.
Guð segir þér hins vegar að hann geti gert eitthvað úr þér sem þú  ekki ert.

Trúmennska, hvað er það ? Traust ? Eru þetta gildi sem eru „inn“ í dag ?Veistu að Guð er trúfastur og hann er svo trúfastur, að Hann er trúr sínu orði.Þ.e. Hann er trúr ritningunni, þetta eiga margir erfitt með að skilja í dag. En á þessu byggir réttlæti Guðs.

Jeremía 1.12. „Því ég vaki yfir orði sínu til að framkvæma það“

Vissir þú að Jesús hélt boðorð Guðs (Jóh. 15.10) Hann biður okkur ekki um neitt sem hann ekki gerði sjálfur.

Meira um þetta efni á nýjasta myndbandinu. Sjá Myndbönd