Sumardagskrá

Nú er komið sumar og það verða smá breytingar á samkomudagskrá hjá okkur.
Biblíuskólinn er búinn að sinni, byrjar sennilega aftur í október. Í sumar verða engar fimmtudagssamkomur, hins vegar ætlum við að hafa opið hús á föstudögum frá kl. 18.00 og gera út á kaffihúsastemmingu. Fara með borð og stóla út á gangstétt fyrir framan kirkjuna okkar.
Nú bænastundir verða áfram í hádeginu þriðjudaga, fimmtudag og föstudaga eins og verið hefur.
Og einnig á þriðjudagskvöldum er alltaf kröftug  bænasamkoma.