Heimsókn Anitu Pears

Dagana 7-9 september verður country söngkonan Anita Pears með okkur hér í Hvítasunnukirkjunni í Keflavík. Samkomur verða Föstudag kl.20.00, síðan samfélag fyrir konur að laugardagsmorgni kl.10:30. Aftur samkoma laugardag kl.20.00 og endum síðan sunnudag kl.11.00.
Fyrir utan það að syngja þá er Anita einnig mjög góður og skemmtilegur biblíufræðari.
Ef þú vilt skoða heimasíðu Anitu þá er slóðin:
http://www.inspirationministries.net/
Samkomurnar eru að sjálfsögðu opnar fyrir alla meðan húsrúm leyfir.

Skrifað af Kristinn Ásgrímsson