Biblíuskóli
|
|
|
|
| |
|
|
Kennslufyrirkomulag.
Kennt verður einu sinni í viku, fimmtudögum og hefst kennslan kl.20.00. Kennt verður 1 klst. síðan er kaffihlé 15 mín síðan umræða í 45 mín um efnið. Kennslan fer fram á ensku og túlkað verður yfir á íslensku Námskeiðið stendur yfir í 3 mánuði. |
Sýn skólans að þjálfa fólk til að:
Að berjast
trúarinnar góðu baráttu.
|
|
Kennarar
Deborah Karl Stefán Ronald Botha |
Deborah Jayne |
|
Frá Pastor:
Jú, eins og segir í bréfi Páls til Tímóteusar: Legg kapp á að reynast hæfur fyrir Guði sem verkamaður, er ekki þarf að skammast sín og fer rétt með orð sannleikans. ( 2.Tím 2.15.)
Orð Guðs er andlegt orð og hér kemur fram hvatning Páls að það sé farið rétt með það. Þetta segir okkur í raun að það sé hægt að mistúlka Orðið einnig. Við sjáum í Mattesuarguðspjalli 4, að þegar Satan kemur til Jesú, þá reynir hann einmitt þetta, að umsnúa orðinu og taka úr samhengi. En Jesús svarar honum strax aftur og segir: " Ritað er ......"
Yfirskriftin yfir skólanum okkar er þessi: " Að berjast trúarinnar góðu baráttu"
Í Hebreabréfinu 11.6, er okkur sagt að það sé ógerlegt að þóknast Guði, nema fyrir trú, einnig segir í 10 kafla Hebreabréfsins að hinn réttláti muni "lifa fyrir trúna"
Allir vita að lífið er barátta, og það er eins með líf trúarinnar það er einnig barátta. Þú getur verið fullur af trú í dag, en á morgun virðist trúin fjarri. Baráttan snýst um að lifa á hverjum degi í trú. Og til þess að það megi verða þurfum við að þekkja ritningarnar, og hinn Heilaga anda sem vitnar með þeim.
Í öðru lagi þá talar Páll um það í bréfi sínu til Títusar að hann vilji að lærisveinar hans verði heilbrigðir í trúnni. Nú ef það er hægt að vera heilbrigður í trúnni, þá er líka hægt að vera óheilbrigður í trúnni. Og það var einmitt tilfellið með Krítarmenn sem Páll minnist á í Títusarbréfinu.
Títus. 1.10: "Því margir eru þverbrotnir og fara með hégómamál og leiða í villu, allra helst eru það umskurnarmennirnir....... Krítarmenn eru síljúgandi, óargadýr og letimagar."
Við sjáum að þetta er ekki alveg heilbrigt, og Páll gefur þeim orð Guðs.
Að gjöra lærisveina er barátta, að vera lærisveinn er einnig barátta.
Til að berjast trúarinnar góðu baráttu, þá þurfum við að læra nota þau vopn sem Guð hefur gefið okkur og einnig að læra hvað ber að varast.
Að lokum, enn ein ástæða til að nema Orð Guðs: "Því að þau eru líf þeirra er öðlast þau og lækning fyrir allan líkama þeirra."
