.
Hvítasunnukirkjan í Keflavík samanstendur af fólki sem vill fylgja Jesú Kristi. Við trúum að Jesús Kristur sé svarið, eins og sjá má skrifað á framhlið kirkjunnar.
Margir eru leitandi og allir hafa andlega þörf. Biblían skýrir frá því að maðurinn sé skapaður til samfélags við Guð. Einnig kennir Biblían okkur að við höfum öll syndgað og að syndin rjúfi þetta samfélag Guðs og manns. Við getum með réttu sagt að syndin sé rót alls ills.
Syndin er því vandamálið og Jesús Kristur lausnin. Málið er einfalt, Jesú Kristur er sá sem frelsar okkur frá syndum okkar og sættir okkur við Guð. Þess vegna er Jesús Kristur svarið, bæði fyrir þetta líf og hið komandi.
Við trúum að tilgangur lífsins byrji hjá sérhverjum manni, þegar hann gerir Jesú Krist að leiðtoga lífs síns.
Fréttir
Páskamót 2025
20. mars, 2025Aðalfundur kirkjunnar 2025
15. febrúar, 2025Dagskrá um jól og áramót 2024 -2025
17. desember, 2024Haustmót dagskrá
12. október, 2024Samkoma fyrir alla fjölskylduna
-
00
dagar
-
00
klst.
-
00
mínútur
-
00
sekúndur
Gospel TV
Orð vikunnar
Þeir skulu koma og fagna á Síonhæð og streyma til gæða Drottins, til kornsins, vínberjalagarins, olíunnar og ungu sauðanna og nautanna, og sál þeirra skal verða eins og vökvaður aldingarður, og þeir skulu eigi framar vanmegnast. Jeremía 31.12