Blogg

27.8.2010

Ljósanótt

Nú líður að ljósanótt, sem er að verða nokkurs konar þjóðhátíð Reykjanesbæjar.
Bærinn iðar af mannlífi og alls konar sýningar tónleikar og aðrir menningarviðburðir eiga sér stað þessa daga. Hvítasunnukirkjan í Keflavík verður nú í fyrsta skipti með kynningar og sölutjald á ljósanótt. Við ætlum að kynna starfið okkar og hjálparstarfið í Afríku og bjóða um leið upp á lifandi tónlist. Auðvitað verður kaffi og meðlæti á boðstólnum.
Ljósanótt stendur yfir dagana 2-5 september. Hápunktur hátíðarinnar er þó laugardagskvöldið kl.23:15 þegar kveikt er á ljósunum.

Skrifað 27.8.2010 kl. 15:24 af Kristinn Ásgrímsson

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

17.6.2010

Sumarmótið nálgast

Nú líður að sumarmóti Hvítasunnukirknanna sem í ár er haldið í Keflavík. Þetta mót er eiginlega endurkoma gömlu mótanna, sem mín kynslóð ólst upp við. Nema í þá daga stóðu mótin yfir í 7 daga.

Nú, á forsíðu er plakat sem hægt er að smella á þar sem upplýsingar eru um mótið og samkomutíma.
Það er von okkar í Keflavík að þetta megi vera tími uppörvunar og endurnýjunar, auk þess að við eigum gott samfélag.
Við ætlum að hafa fjölbreytilega dagskrá. Það verða sönghópar frá Keflavík, Akureyri og hljómsveitin G.I.G verður með okkur fyrsta kvöldið. Ekki reyndar ákveðið enn hvort við fáum að Gospel kór Fíladelfíu í heimsókn á sunnudeginum, þegar þetta er skrifað.
Nú ræðumenn verða:

Fimmtudagur kl. 20.00       Kristinn Ásgrímsson     
Föstudagur    kl. 15.00       Guðni Hjálmarsson
Föstudagur    kl. 20.00       Aron Hinnriksson
Laugardagur  kl. 10.00       Karl Stefán Samúelsson
Laugardagur  kl. 20.00       Snorri Óskarsson
Sunnudagur   kl. 11.00       Vörður Traustason

Presturinn í Ytri Njarðvíkur kirkju hefur sýnt okkur þá velvild að lána okkur kirkjuna undir mótið og erum við honum innilega þakklát fyrir það. Þannig að síðasta samkoman verður sameiginleg samkoma með Njarðvíkur kirkju og mun þá séra Kjartan Jónsson vera prestur þann dag í fjarveru séra Baldurs. Kjartan er flestum okkar kunnur sem prestur samfélags sem heitir Salt.

Nú eins og fram kemur á plakatinu þá er yfirskrift þessa móts að: "Berjast trúarinnar góðu baráttu"
Margir vindar blása í hinum kristna heimi á þessud dögum og það er nauðsynlegt fyrir okkur að hafa hús okkar á "bjarginu" og halda fast í þá trú sem okkur hefur verið í hendur seld. (Júd 1.3.)
 

Skrifað 17.6.2010 kl. 20:13 af Kristinn Ásgrímsson

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

9.5.2010

Föstudagssamkomur

Nú er komið sumar og alfanámskeiðinu lokið. Við tókum þá ákvörðun í vor að breyta samkomutímanum frá fimmtudögum yfir á föstudaga.
Ástæðan er sú að við viljum ná til yngra fólks. Þannig að föstudagssamkomurnar köllum við opið hús og dagskráin verður fjölbreytt í sumar. Fyrsta kvöldið sótti Jóhannes Hinnriksson okkur heim og hafði með sér hóp að ungu fólki. Það var frábært kvöld.
N.k. föstudag verður Aron Hinnriksson með okkur. Það stendur einnig til að fá nokkra sönghópa til liðs við okkur svo sem U.N.G.  Jack London o.fl.

Við finnum fyrir því að Guð er að gjöra eitthvað nýtt á meðal okkar, það er að fjölga á sunnudögum og það ríkir eftirvænting í kirkjunni.

Skrifað 9.5.2010 kl. 20:00 af Kristinn Ásgrímsson

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 17
Gestir í dag: 9
Flettingar í gær: 227
Gestir í gær: 32
Samtals flettingar: 185851
Samtals gestir: 38073
Tölur uppfærðar: 5.9.2010 03:37:15